|
|||
![]() |
|||
2015-11-09 11:57:39 CET 2015-11-09 11:58:40 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirStandard and Poor's staðfestir lánshæfismatseinkunn Arion bankaStandard & Poor's hefur staðfest lánshæfismatseinkunn Arion banka, BBB-/A-3, með stöðugum horfum. Að mati Standard & Poor's eru helstu styrkleikar bankans sterk eiginfjár- og vogunarhlutföll, stöðug markaðsstaða með jafnvægi milli einstaklings- og fyrirtækjamarkaða og loks sterk lausafjárstaða sem nægir til að mæta væntu útflæði innstæðna í tengslum við afléttingu fjármagnshafta. Helstu veikleikar bankans að mati Standard & Poor‘s eru óvissa tengd losun gjaldeyrishafta, að innlent efnahagslíf er fábrotið og býður upp á litla möguleika til dreifingar á tekjum og eignum og að afkoma bankans einkennist enn af háum einsskiptisliðum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|