2015-06-12 13:22:48 CEST

2015-06-12 13:23:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Málið varðar auglýsingu á útdregnum húsbréfum og birtingu þeirra þann 15. júní 2015. En þau eru til innlausnar 15. ágúst 2015.


Vegna verkfalls lögfræðinga, hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, er
ógerlegt að draga út þau númer húsbréfa sem auglýsa á  eigi síðar en 15. júní
n.k. og eiga að vera til innlausnar 15. ágúst 2015. 

Í reglugerð um húsbréf segir að númer útdreginna húsbréfa skulu birt í
Lögbirtingablaði í síðasta lagi tveimur mánuðum fyrir gjalddaga. Einnig segir
að útdráttur skuli fara fram hjá Raunvísindastofnun Háskólans að viðstöddum
fulltrúa Íbúðalánasjóðs undir umsjón lögbókanda sem kemur frá
Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu. 

Eftirtaldir flokkar og nafnverð eru á innlausn þann 15. ágúst n.k.

1. flokkur 1990                  IBH15-0815         2.220.000

2. flokkur 1990                  IBH15-1115         3.650.000

2. flokkur 1991                 IBH16-0515         4.970.000

3. flokkur 1992                 IBH17-0815         2.330.000

2. flokkur 1993                 IBH18-0815         2.110.000

2. flokkur 1994                 IBH19-0515         6.220.000

3. flokkur 1994                 IBH19-0815         2.110.000

Útdráttur fer fram um leið og hægt verður að draga húsbréfin út  og þau auglýst
í kjölfarið. Stefnt er að því að þessi húsbréf verði innleyst þann 15. ágúst
2015