2008-02-13 20:24:14 CET

2008-02-13 20:25:12 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
FL GROUP hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar á framkvæmdastjórn FL Group


FL Group tilkynnir um breytingar á framkvæmdastjórn félagsins. Sveinbjörn
Indriðason, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs og Halldór Kristmannsson,
framkvæmdastjóri Samskiptaviðs, munu láta af störfum hjá félaginu. Gengið hefur
verið frá samkomulagi um starfslokin og munu Sveinbjörn og Halldór ljúka
ákveðnum verkefnum fyrir félagið á næstum vikum. 
Viðar Þorkelsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fjármálasviðs FL Group og
mun taka við starfi Sveinbjörns, sem hefur ákveðið að láta af störfum.  Á
árunum 2006 til 2008 gegndi Viðar stöðu framkvæmdastjóra fjármála- og
tæknisviðs 365 hf.  Frá 2005 til 2006 var hann fjármálastjóri og
aðstoðarforstjóri Dagsbrúnar hf.  Á árunum 2000 til 2005 starfaði Viðar sem
framkvæmdastjóri fjármála- og rekstarsviðs og síðar sem aðstoðarforstjóri
Vodafone og fyrirrennara þess félags. Viðar gegndi stöðu svæðisstjóra
Landsbanka Íslands á Reykjanesi auk annarra starfa fyrir Landsbanka Íslands á
árunum 1988 til 2000, með námshléi 1991 til 1993. Auk þess hefur hann m.a.
setið í stjórnum European Film Group, Senu, Ísafoldarprentsmiðju, Internets á
Íslandi, Íslenska fjársjóðsins og Hamla hf. Viðar lauk prófi í viðskiptafræði
frá Háskóla Íslands árið 1988 og MBA gráðu frá Peter F. Drucker Management
Center í Bandaríkjunum 1993. 
Í tengslum við framangreindar breytingar mun Samskiptasvið félagsins heyra
undir Fjármálasvið og mun Júlíus Þorfinnsson veita því forstöðu. 


Nánari upplýsingar veitir:
Jón Sigurðsson
Forstjóri FL Group
Sími: 591 4400

Júlíus Þorfinnsson
Samskiptavið FL Group
Sími: 896 6612