2016-06-16 17:45:03 CEST

2016-06-16 17:45:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

RÍKISREIKNINGUR 2015


Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2015 hefur nú verið birt og ríkisreikningur
sendur Alþingi. Helstu niðurstöður eru að tekjujöfnuður ársins var jákvæður um
20,0 ma.kr. sem er í samræmi við áætlanir. Til samanburðar var tekjujöfnuður
ársins 2014 jákvæður um 46,4 ma.kr. 

Tekjurnar árið 2015 voru nokkuð umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir í
fjárlögum. Það skýrist af arðgreiðslum fjármálafyrirtækja og styrkari
skattstofnum vegna aukinna umsvifa í þjóðfélaginu og var tekið tillit til
þessarar aukningar í fjáraukalögum. Gjöldin voru nokkuð umfram heimildir
fjárlaga en auknar heimildir voru samþykktar með fjáraukalögum ársins til að
mæta m.a. auknum útgjöldum vegna kjarasamninga opinberra starfsmanna og
gerðardóms, fjármagnskattgreiðslum ríkissjóðs og öðrum þáttum. 

Frumjöfnuður ársins var jákvæður um 3,8% af landsframleiðslu á árinu á móti
5,3% árið 2014. Á árinu 2015 var ríkissjóður með hreinan lánsfjárafgang sem nam
um 1,9% af landsframleiðslu, samanborið við 3,9% lánsfjárafgang árið áður.
Þetta er svipuð niðurstaða og gert hafði verið ráð fyrir. Í fjárlögum var
hreinn lánsfjárafgangur áætlaður 1,1% af vergri landsframleiðslu en 1,9% með
breytingu í fjáraukalögum. 

Öflugur hagvöxtur stutt við kaupmáttaraukningu

„Stöðugleiki í efnahagsumhverfinu, öflugur hagvöxtur og aðgerðir
ríkisstjórnarinnar hafa á undanförnum misserum stutt mjög við
kaupmáttaraukningu almennings og bætt afkomu ríkissjóðs. Í samræmi við ábyrga
stjórn ríkisfjármála var stefnt að jákvæðum heildarjöfnuði ríkissjóðs á árinu
2015 og endurspeglaði sú stefna að tekist hafði með markvissum aðgerðum að ná
jafnvægi í ríkisfjármálunum,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra um niðurstöður ríkisreiknings. Sjálfvirk skuldasöfnun
ríkissjóðs hafi verið stöðvuð árið áður, en fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2014
var fyrsta hallalausa frumvarpið frá árinu 2007. 

Ráðherra segir mikilvægt að vinna áfram að niðurgreiðslu skulda og þar með
lægri vaxtabyrði ríkissjóðs sem skapi svigrúm til að takast á við ýmis
aðkallandi verkefni og skuldbindingar. „Slíkt skilar íslensku samfélagi miklum
ábata þegar fram í sækir. Verkefnið fram undan er að tryggja áframhaldandi
árangur í ríkisfjármálum,“ segir Bjarni. Fjármálastefna og fjármálaáætlun til
fimm ára, sem lagðar voru fyrir Alþingi í vor í samræmi við ný lög um opinber
fjármál eigi að byggja undir jafnvægi í efnahagslífi og stöðugleika fyrir
fyrirtæki og heimili sem og hið opinbera. „Þannig skapast svigrúm til umbóta og
úrbóta í þjónustu fyrir almenning og styrkari stoðum er skotið undir
efnahagsbatann og batnandi lífskjör fólksins í landinu.“ 

Staðfestur með rafrænum undirritunum

Fjármála- og efnahagsráðherra, fjársýslustjóri og ríkisendurskoðandi staðfestu
ríkisreikning með rafrænum undirritunum og nýttu til þess rafræn skilríki, en
þetta er í þriðja sinn sem reikningurinn er undirritaður með þessum hætti.
Ísland er í hópi fyrstu ríkja til þess að staðfesta ríkisreikning með þessum
hætti. 



Reikninginn í heild sinni með þeim sundurliðunum og skýringum sem honum fylgja
má finna á vef Fjársýslunnar, fjs.is