2009-04-03 17:23:39 CEST

2009-04-03 17:24:40 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Auglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 0715


Miðvikudaginn 8. apríl kl: 14:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Rétt er að benda á að útboð
ríkisvíxla eru venjulega haldin kl. 11:00 en þar sem ákvörðun um stýrivexti
Seðlabankans fer fram þennan dag er útboðinu frestað til kl. 14:00. 

Heildarfjárhæð útboðsins verður allt að 20.000 milljónum króna að nafnverði.

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. apríl 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisvíxla: 

Flokkur               
RIKV 09 0715

Gjalddagi	
15.7.2009	

Lánstími
3 mánuðir

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
fimmtudaginn 16. apríl 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og
markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9635.