|
|||
2008-05-08 15:23:32 CEST 2008-05-08 15:24:32 CEST REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirKaup Marel Food Systems á Marel Stork Food Systems taka gildiKaup Marel Food Systems á Stork Food Systems taka gildi í dag, 8. maí. Tilkynnt var um kaupsamninginn þann 28. nóvember 2007 og var samningurinn háður eftirfarandi skilyrðum: • Að fyrirhugað yfirtökutilboð London Acquisition N.V. um að kaupa alla hluti í Stork N.V. væri skilyrðislaust. • Jákvæð umsögn Stork Works Council. • Samþykki evrópskra samkeppnisyfirvalda. Lýst var yfir þann 17. janúar sl. að yfirtökutilboð London Acqusition N.V. um að kaupa alla hluti í Stork N. V. væri án skilyrða. Kaupin hlutu jákvæða umsögn Stork Works Council. Með samþykki evrópskra samkeppnisyfirvalda þann 21. apríl sl. var öllum skilyrðum kaupsamningsins fullnægt. |
|||
|