2014-07-09 17:31:00 CEST

2014-07-09 17:31:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 14 1015 OG RIKV 15 0115


Föstudaginn 11. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 14 1015 og RIKV 15 0115 sem eru með gjalddaga 15.
október 2014 og 15. janúar 2015. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

   Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. júlí 2014.

Sótt verður um að RIKV 15 0115 verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi
miðvikudaginn 16. júlí 2014. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9636.