|
|||
![]() |
|||
2011-04-13 13:45:35 CEST 2011-04-13 13:46:35 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 0715 og RIKV 11 1017Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 11 0715 og RIKV 11 1017 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 11 0715: Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.298 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.098 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,222 (flatir vextir 3,11%). RIKV 11 1017: Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.105 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.505 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,382 (flatir vextir 3,20%) |
|||
|