|
|||
2022-08-19 15:54:42 CEST 2022-08-19 15:54:43 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Leiðrétting: Kvika banki hf.: Afkoma fyrstu sex mánuði ársins 2022 og afkomuspá fyrir næstu fjóra fjórðungaÍ skýringu nr. 4, á blaðsíðu 13 í árshlutareikningi samstæðunnar 30.06.2022 sem birt var þann 18. ágúst s.l., er birt tafla með afkomu starfsþátta samstæðunnar fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Fyrir mistök þá voru ekki réttar fjárhæðir í línunni hreinar fjárfestingatekjur hjá starfsþáttunum eignastýring og viðskiptabanki. Réttar fjárhæðir eru 18.993 þ.kr. hjá eignastýringu og 479.886 þ.kr. hjá viðskiptabanka. Leiðréttingin hefur samsvarandi áhrif á hreinar rekstrartekjur og afkomu fyrir skatta hjá starfsþáttunum. Réttar fjárhæðir komu fram í fjárfestakynningunni. Framangreind leiðrétting hefur ekki áhrif á rekstrarreikning eða efnahagsreikning samstæðunnar. Meðfylgjandi er leiðréttur árshlutareikningur samstæðunnar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2022. Viðhengi |
|||
|