2017-01-24 10:11:20 CET

2017-01-24 10:11:20 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eimskip styrkir stöðu sína í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun með kaupum á 80% hlut í frystiflutningsmiðlunarfyrirtækinu Mareco í Belgíu


Ársvelta nemur um 60 milljónum evra eða um 7,3 milljörðum króna og flutt magn
er um 32 þúsund gámaeiningar 

Eimskip hefur styrkt stóðu sína í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun með kaupum
á 80% hlut í flutningsmiðlunar-fyrirtækinu Mareco N.V. Fyrirtækið var stofnað
árið 2002 og eru höfuðstöðvar þess í Antwerpen í Belgíu. Núverandi
stjórnendateymi mun áfram eiga 20% hlut í fyrirtækinu og stýra rekstri þess.
Mareco hefur á að skipa 26 starfsmönnum á tveim stöðum, 22 í Antwerpen og
fjórum í Sao Paulo í Brasilíu. 

Mareco leggur áherslu á frystiflutninga, einkum á útflutning víðs vegar að úr
heiminum til Vestur-, Mið- og Suður-Afríku. Helstu vörutegundir eru
sjávarafurðir, kjúklingur, svínakjöt og nautakjöt. Ársvelta fyrirtækisins nemur
um 60 milljónum evra eða um 7,3 milljörðum króna, EBITDA hlutfall er á bilinu
5-6% og nemur flutt magn um 32 þúsund gámaeiningum á ári. 

Áætluð fjárfesting nemur 16,6 milljónum evra eða um 2 milljörðum króna, en
endanleg fjárhæð ræðst af rekstrarárangri fyrirtækisins á árinu 2016. Kaupin
eru fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Mareco verður hluti af samstæðu
Eimskips frá og með byrjun þessa árs. 

Í tengslum við fjárfestingarverkefni Eimskips hefur félagið samið við
Íslandsbanka um lánalínu til 18 mánaða að fjárhæð 47 milljónir evra. Vegna
kaupanna á Mareco hafa 7 milljónir evra verið dregnar á línuna. 

Kaupin á Mareco styrkja landfræðilegt þjónustunet Eimskips í frystiflutningum,
sérstaklega á svæðum í Afríku og Suður-Ameríku, og eykur fjölbreytni í frosnum
afurðum. Þjónustunet Mareco styður við möguleika samstæðunnar á að leita nýrra
tækifæra á nýjum markaðssvæðum og styður við frekari þróun á
frystiflutningsþjónustu Eimskips. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips

“Við erum ánægð með að Mareco er nú orðið hluti af samstæðu Eimskips og
fyrirtækið mun styrkja frekar frystiflutningsþjónustu okkar með útvíkkun á
þjónustuframboði Eimskips, bæði hvað varðar nýja vöruflokka og ný landssvæði.
Breytingin mun einnig auka fjölbreytileika okkar og dýrmæt reynsla stjórnenda
og starfsmanna Mareco mun hjálpa til við að styrkja okkar alþjóðlegu
flutningsmiðlunarþjónustu.“ 

Koen Jansen, framkvæmdastjóri Mareco

„Við höfum þekkt Eimskip í mörg ár og erum mjög ánægð með að verða hluti af
samstæðu Eimskips þar sem við teljum að við getum lagt félaginu til mikla
þekkingu og reynslu. Fyrirtækin tvö hafa fram til þessa lagt áherslu á ólíka
markaði og vörutegundir og við sjáum þess vegna fram á að þau muni hafa hag af
reynslu hvors annars þegar sótt er inn á nýja markaði.“ 

Um Eimskip

Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við
alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá
framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu. Eimskip var
stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur
60 starfsstöðvar í 20 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa um
1.680 starfsmönnum. Um helmingur tekna félagsins kemur frá starfsemi utan
Íslands.