|
|||
![]() |
|||
2017-10-30 08:37:49 CET 2017-10-30 08:38:10 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarOssur Hf : Viðskipti með hlutabréf Össurar sameinuð í kauphöll Nasdaq Copenhagen frá 6. desember 2017Tilkynning nr. 77/2017 30. október 2017 Viðskipti með hlutabréf Össurar sameinuð í kauphöll Nasdaq Copenhagen frá 6. desember 2017 Viðskipti með hlutabréf Össurar fara brátt eingöngu fram í kauphöll Nasdaq Copenhagen eftir að Kauphöll Íslands féllst á beiðni Össurar um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum í Kauphöll Íslands. Með því að sameina viðskiptin á einum markaði mun seljanleiki hlutabréfa Össurar aukast og verðmyndun verða virkari öllum hluthöfum til hagsbóta. Síðasti viðskiptadagur með hlutabréf Össurar í Kauphöll Íslands verður 30. nóvember 2017. Sameining viðskipta í kauphöll Nasdaq Copenhagen mun svo eiga sér stað með sjálfkrafa umbreytingu hlutabréfanna 6. desember 2017. Frá þeim degi verða öll hlutabréf í Össuri eingöngu til viðskipta í kauphöll Nasdaq Copenhagen. Hluthafar þurfa ekki aðhafast neitt og fjöldi hluta verður óbreyttur. Umbreytingin mun aðeins hafa áhrif á hluthafa sem eiga hlutabréf sem eru til viðskipta í Kauphöll Íslands. Í viðhengi er að finna frekari upplýsingar um framkvæmdina og áhrif umbreytingarinnar fyrir viðkomandi hluthafa. Tilkynningu Kauphallar Íslands má finna hér: https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=807 532&lang=en Jón Sigurðsson, forstjóri: "Skráning Össurar í Kauphöll Íslands árið 1999, fyrir um 18 árum, gegndi veigumiklu hlutverki í vexti Össurar úr litlu stoðtækjafyrirtæki í leiðandi félag á heimsvísu og við erum þakklát fyrir þau tækifæri sem skráningin veitti okkur. Með því að sameina viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll Nasdaq Copenhagen mun seljanleiki bréfanna aukast og verðmyndun verða virkari til hagsbóta fyrir alla hluthafa Össurar." Nánari upplýsingar Jón Sigurðsson, forstjóri 515 1300 Sveinn Sölvason, fjármálastjóri 515 1300 Davíð Örn Hreiðarsson, fjárfestatengill 515 1380 dohreidarsson@ossur.com Tilkynningar frá Össuri í tölvupósti Ef óskað er eftir tilkynningum frá Össuri í tölvupósti má finna skráningu á heimasíðunni okkar: www.ossur.com/investors. Um Össur Össur (NASDAQ: OSSR) hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks. Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sínu sviði með höfuðstöðvar á Íslandi og rekur starfsstöðvar í yfir 20 löndum. www.ossur.com [] |
|||
|