2009-12-09 17:55:20 CET

2009-12-09 17:55:20 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Sala íbúðabréfa og ríkisbréfa


Fimmtudaginn 10. desember fer fram útboð á ríkisbréfum sem lögð voru fram til
tryggingar verðbréfalánum sem ríkissjóður yfirtók. Hér er um að ræða sölu á
síðustu bréfum í fjórum flokkum íbúðabréfa og tveimur flokkum ríkisbréfa
samtals að andvirði tæplega 28 ma.kr. að nafnverði. Útboðinu verður þannig
háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast kaupendum á sama verði. Lægsta samþykkta
verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. 

Í boði er eftirfarandi flokkur að nafnverði:

Flokkur		Nafnverð
RIKB 13 0517	1,1 ma.kr.

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Tilboð skulu sendast til Seðlabankans í gegnum
Bloomberg-útboðskerfið milli kl. 09:30 og 10:00. Tilboð skulu sett fram í
verðum, með þremur aukastöfum Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. Niðurstaða verður birt kl. 11:00. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 14. desember 2009.

frett_091209.pdf