|
|||
2016-03-11 14:45:32 CET 2016-03-11 14:45:32 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Eigendaskipti samþykktEins og fram hefur komið var 95% eignarhlutur Glitnis í Íslandsbanka afhentur Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu sem hluti af stöðuleikaframlagi slitabúsins fyrr í vetur. Fyrir átti íslenska ríkið 5% hlut í bankanum. Samkeppniseftirlitið hefur nú samþykkt eigendaskiptin og er Íslandsbanki því alfarið í eigu ríkisins. Breytt eignarhald mun ekki hafa áhrif á daglega starfsemi Íslandsbanka og munu viðskiptavinir og starfsmenn ekki finna fyrir breytingum vegna þessa. Að ósk eigenda, hefur Aðalfundi Íslandsbanka verið frestað til 19. apríl 2016. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1993752] |
|||
|