2010-08-26 17:52:17 CEST

2010-08-26 17:53:15 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Ársreikningur

Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs 2010


Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2010
var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í dag, 26. ágúst 2010.
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. 

Tap varð af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 1.680
millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 8.402
millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. 

Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr.
544/2004 um Íbúðalánasjóð er 2,1% í lok júní 2010. Hlutfallið er reiknað með
sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er
að hlutfallið sé yfir 5,0%. Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað
vinnuhóp sem ætlað er að fjalla um eiginfjárhlutfall sjóðsins og leggja fyrir
stjórn tillögur í þeim efnum. Vinnuhópurinn mun skila niðurstöðum sínum síðar á
árinu 2010. 

Virðisrýrnun útlána nam 3.699 millj. kr. í lok júní 2010 og hækkar um 572
millj. kr. á tímabilinu. Vanskil hafa aukist á árinu 2010 og eru 6,3%
lántakenda sjóðsins með einn eða fleiri gjalddaga í vanskilum í lok júní 2010
samanborið við 5,3% lántakenda í árslok 2009. 

Frá áramótum hefur sjóðurinn leyst til sín 392 íbúðir til fullnustu krafna.
Íbúðir í eigu sjóðsins voru 739 í lok júní 2010. Íbúðirnar eru færðar á áætluðu
markaðsverði í lok júní að frádreginni niðurfærslu að fjárhæð 1.135 millj. kr.
vegna óvissu á húsnæðismarkaði. 

Meðal krafna á lánastofnanir í lok júní 2010 eru eignfærðar 2.352 millj. kr.
vegna krafna á Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf. og Straum - Burðarás
fjárfestingarbanka hf. og eru þær óbreyttar frá árslokum 2009. Í uppgjöri
sjóðsins er gengið út frá að hann eigi rétt á skuldajöfnun. Óvissa er um
uppgjör krafna og afleiðusamninga ásamt heimild sjóðsins til skuldajöfnunar.
Tap sjóðsins getur því orðið annað þegar endanleg uppgjör fara fram.