|
|||
![]() |
|||
2017-08-15 18:31:50 CEST 2017-08-15 18:31:50 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 27 talsins og námu samtals 7.100 m. kr. að nafnverði. Tilboð að fjárhæð 200 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu 5,27% og var því tilboði ekki tekið. Ellefu tilboð að fjárhæð 3.540 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,55%-2,63%. Öllum tilboðum var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,63%. Heildarstærð flokksins verður 6.280 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Fimmtán tilboð að fjárhæð 3.360 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,53%-2,58%. Öllum tilboðum var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,58%. Heildarstærð flokksins verður 14.240 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. ágúst 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|