2008-07-18 18:52:09 CEST

2008-07-18 18:53:10 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Nýherji hf. - Ársreikningur

- Uppgjör Nýherja hf. á fyrri árshelmingi 2008


Helstu niðurstöður á fyrri árshelmingi

• Ágæt afkoma af kjarnastarfsemi Nýherja og starfsemi Applicon erlendis, en
  afkoma af fjárfestingum í nýrri starfsemi undir væntingum 

• Sala á vöru og þjónustu nam 7.129 mkr ISK, þar af voru um 22% af starfsemi
  félagsins erlendis 

• EBITDA var 268 mkr, en var 302 mkr á fyrri árshelmingi 2007

• Gengistap var 455  mkr á fyrri árshelmingi

• Tap tímabilsins nam 432  mkr samanborið við 209 mkr hagnað á fyrri
  árshelmingi 2007 


Þórður Sverrisson, forstjóri:

“Rekstur og afkoma af kjarnastarfsemi Nýherja var ágæt og einnig af starfsemi
Applicon erlendis. Slök afkoma af fjarfestingum í nýrri starfsemi íþyngja
rekstrinum, en áfram verður unnið að því að ná fram samlegð í núverandi og
nýrri starfsemi innan Nýherja. EBITDA var lakari nú en á sama ársfjórðungi á
síðasta ári, m.a. vegna tapreksturs einstakra eininga og talsverðrar
gjaldfærslu á hugbúnaðarþróun. Lækkun á gengi íslensku krónunnar og háir vextir
á Íslandi valda því einnig að afkoma félagsins er mun lakari en áætlanir gerðu
ráð fyrir.”


Sjá framhald fréttatilkynningar í viðhengi.