|
|||
2007-11-23 19:43:37 CET 2007-11-23 19:43:37 CET REGULATED INFORMATION Landsbanki Íslands hf. - FyrirtækjafréttirSkýrsla Fitch um lánshæfismat Landsbankans (A / F1 / B/C / stable)Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Rating staðfesti í gær óbreytta lánshæfiseinkunn Landsbankans sem: langtímaskuldbindingar A, skammtímaeinkunn F1, stuðningur 2 og fjárhagslegur styrkur B/C. Horfur lánshæfismatsins eru stöðugar. Í meðfylgjandi skýrslu tekur Fitch það fram að lánshæfismatseinkunnin endurspegli leiðandi stöðu Landsbankans á heimamarkaði, aukna fjölbreytni í tekjum bankans, varkár afskriftarframlög, góða eiginfjárstöðu og bættar fjármögnunarleiðir. Í matinu er einnig tekið tillit til þess að hlutabréfastöður bankans eru enn umtalsverðar og hugsanlegt umrót á innanlandsmarkaði og í annarri starfsemi tengdri fjármálamörkuðum. Sjá nánar í meðfylgjandi skýrslu og fréttatilkynningu frá Fitch. Frekari upplýsingar um lánshæfismatseinkunnir Landsbankans má finna hér: www.landsbanki.is/english/investorrelations/debtinvestors/creditratings Frekari upplýsingar veita: Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J. Kristjánsson í s. 820 6399 og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340. |
|||
|