2016-01-14 19:07:56 CET

2016-01-14 19:07:56 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Íslandsbanki hf. lýkur útboði sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur flokkum sértryggðra
skuldabréfa.  Óverðtryggði flokkurinn, ISLA CB 19, var boðinn út og seldust þar
800 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,50%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var
einnig boðinn út og seldust þar 540 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,18%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2,9 ma. kr. en 46% tilboða var tekið.
Heildarstærð ISLA CB 19 að loknu útboði verður 5,84 ma. kr. og heildarstærð ISLA
CBI 22 verður 4,32 ma. kr. Heildarupphæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa
Íslandsbanka verður að nafnverði 52,86 ma. kr. að loknu útboði.

Stefnt er að töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. janúar.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1978969]