|
|||
2018-08-17 16:46:57 CEST 2018-08-17 16:46:59 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - Árshlutareikningur - 6 mán.Sex mánaða uppgjör LandsvirkjunarTekjur, EBITDA og hagnaður hækka milli tímabila Helstu atriði árshlutareiknings
Hörður Arnarson, forstjóri: „Rekstur Landsvirkjunar heldur áfram að þróast með jákvæðum hætti en fyrri hluti ársins 2018 er tekjuhæsti árshelmingurinn í sögu fyrirtækisins, meðal annars vegna aukinnar orkusölu og hækkandi álverðs. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði á rekstur sem við lítum helst til, er rúmir 9 milljarðar króna á fyrri helmingi ársins og jókst um 15% frá sama tímabili árið áður. Þá lækkuðu nettó skuldir fyrirtækisins um 5 milljarða króna, eftir að tímabundið hafði hægt á lækkun skulda vegna umfangsmikilla framkvæmda. Í lok júní var hornsteinslagning og gangsetning Búrfellsstöðvar II, átjándu aflstöðvar Landsvirkjunar, og verður hún tekin í fullan rekstur í ágúst 2018. Áður hafði Þeistareykjastöð hafið fullan rekstur í apríl.“ Viðhengi |
|||
|