|
|||
![]() |
|||
2016-02-04 18:27:17 CET 2016-02-04 18:27:17 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 2,52 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,76 ma. kr. Seldir voru víxlar í 4 mánaða flokkinn ISLA 16 0616 að nafnvirði 1.420 m.kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 97,8095). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0721 seldust að nafnvirði 320 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,1964) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 0815 seldust að nafnvirði 780 m.kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,7677). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 11,6 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 12. febrúar næstkomandi en þá eru 1,5 ma. kr. á gjalddaga í ISLA 16 0212. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1983920] |
|||
|