|
|||
![]() |
|||
2013-11-04 10:24:57 CET 2013-11-04 10:25:58 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumMarel hf. – Breytingar á stjórn félagsinsMarel hf. hefur borist tilkynningar frá stjórnarmönnunum Árna Oddi Þórðarsyni og Theo Rein Bruinsma um úrsögn úr stjórn félagsins frá og með deginum í dag. Samkvæmt gr. 5.1 í samþykktum félagsins kýs aðalfundur árlega 7-9 menn í stjórn félagsins, en eftir framangreindar úrsagnir skipa stjórnina 5 stjórnarmenn. Með vísan til heimildar í 2. mgr. 64. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 hefur stjórn félagsins ákveðið að fresta kjöri nýrra stjórnarmanna til næsta aðalfundar að gættum skilyrðum ákvæðisins um ákvörðunarbærni stjórnar. |
|||
|