|
|||
2009-10-23 11:32:32 CEST 2009-10-23 11:33:31 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður - VaxtaákvörðunSamkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 22. október s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,10%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,55% og 5,05% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 23. október 2009. |
|||
|