2008-11-28 14:30:59 CET

2008-11-28 14:32:07 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

English Islandic
SPRON hf. - Ársreikningur

Afkoma SPRON hf. á þriðja ársfjórðungi 2008


Tap SPRON 3,1 milljarður króna eftir skatta
Eiginfjárhlutfall 10,1% 

Helstu niðurstöður á þriðja ársfjórðungi 2008:

• Tap eftir skatta nam 3,1 milljarði króna en allar skráðar eignir eru færðar á
  markaðsvirði. Áframhaldandi neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði á þriðja
  ársfjórðungi olli gengistapi sem nam 3.465 milljónum króna. 
• Hreinar vaxtatekjur námu 1,1 milljarði króna og jukust um 47% frá sama
  tímabili í fyrra. 
• Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 2,0 milljarða króna.
• Innlánaaukning  var 10% frá árslokum 2007.
• Innlán voru 45% af heildarútlánum til viðskiptamanna. 
• Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 206,5 milljörðum króna. 
• Heildareignir 266,6 milljarðar króna og jukust 19% frá árslokum 2007.
• Eigið fé nam 10,4 milljörðum króna.
• Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON var 10,1% en lögboðið lágmark er 8%.

Helstu atburðir eftir lok þriðja ársfjórðungs 2008:
• Alþjóðleg fjármálakreppa og fall viðskiptabankanna þriggja hefur stórskaðað
íslenskt efnahagsumhverfi og haft mikil áhrif á eiginfjárstöðu SPRON. 
Fjármálaeftirlitinu hefur verið gert grein fyrir stöðunni og er unnið að því
styrkja eiginfjárstöðuna í góðri samvinnu við helstu hagsmunaaðila. Sú vinna er
vel á veg komin og er niðurstöðu að vænta innan skamms. 
• Forsendur fyrir fyrirhugaðri sameiningu SPRON og Kaupþings brustu við fall
Kaupþings þann 9. október 2008 og í kjölfarið var ráðist í endurskipulagningu á
SPRON í ljósi breyttra aðstæðna. Er niðurstöðu þeirra aðgerða að vænta áður en
langt um líður. 

Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON: 

” Afkoman fyrir ársfjórðunginn endurspeglar stöðuna fyrir hrun
viðskiptabankanna þriggja og var tap bankans á ársfjórðunginum 3 milljarðar og
eiginfjárhlutfallið rúmlega 10% sem er viðunandi miðað við erfiðar aðstæður á
fjármálamörkuðum.  Fall bankanna og afleiðingar þess eru ekki enn að fullu
komnar fram og munu snerta öll fyrirtæki og heimili í landinu.   SPRON hefur
ekki farið varhluta af því en aðstæður gera það að verkum að erfitt er að meta
verðmæti eigna og aðrar stærðir af fullri nákvæmni. Við höfum hins vegar gripið
til aðgerða til að styrkja stöðu SPRON með langtímahagsmuni bankans að
leiðarljósi og að því ferli koma allir helstu hagsmunaðilar. Niðurstöður þeirra
aðgerða er að vænta innan skamms."

Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Hauksson í síma 550 1213 og Valgeir M.
Baldursson í síma 550 1774.