|
|||
2007-11-09 12:13:04 CET 2007-11-09 12:13:04 CET Teymi hf. - Viðskipti stjórnendaTeymi - Útgáfa kaupréttaStjórn Teymis hf. hefur ákveðið að gefa út kauprétti að hlutafé í félaginu til lykilstarfsmanna samstæðunnar. Rétthöfum er heimilt að nýta þriðjung kaupréttar á hverju ári í þrjú ár og er fyrsta innlausn í nóvember 2008. Rétturinn er á genginu 6,54 kr. á hlut sem er lokagengi 8. nóvember 2007. Skilyrði fyrir innlausn er að starfsmaður hafi ekki látið af störfum fyrir innlausnardag. Samtals gaf stjórnin út kauprétti fyrir 10 milljónir hluta. |
|||
|