|
|||
2011-12-07 09:20:00 CET 2011-12-07 11:18:13 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - ÁrsreikningurÍslandsbanki results for the period ended 30 September 2011Afkoma Íslandsbanka fyrstu 9 mánuði ársins 2011 - Arðsemi eiginfjár 11,9%,reiknað á ársgrundvelli, sem er í takti við arðsemiskröfu Bankasýslu ríkisins og annarra eigenda. - Eiginfjárhlutfallið í lok tímabilsins var 28,8% sem er töluvert hærra en það 16% lágmark sem FME setur bankanum. - Skattar og opinber gjöld tímabilsins áætluð um 4.143 m. kr. - Heildarafskriftir og eftirgjafir til einstaklinga og fyrirtækja frá stofnun bankans nema um 280 milljörðum króna. - Um 17.700 einstaklingar og 2700 fyrirtæki hafa fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum. Helstu niðurstöður: * Hagnaður bankans nam 11.346 m. kr. eftir skatta en var 13.151 kr. fyrir sama tímabil í fyrra. * Hreinar vaxtatekjur námu 24.151 m. kr. samanborið við 25.747 m. kr. fyrir sama tímabil árið áður. Lækkun vaxtatekna skýrist m.a. af lækkuðu vaxtastigi milli ára. * Hreinar þóknanatekjur námu 4.366 m. kr. samanborið við 5.234 m. kr. fyrir sama tímabil árið áður. Lækkun þóknanatekna á milli ára skýrist að mestu leyti af brotthvarfi dótturfélagsins Borgunar úr samstæðu. * Heildarstærð efnahagsreiknings í lok september var 679 ma. kr. og hefur lítið breyst frá árslokum 2010. * Arðsemi eigin fjár fyrir tímabilið var 11,9% samanborið við 17,8% á sama tímabili árið áður. Lækkunin skýrist m.a. af hærri eiginfjárstöðu og lækkuðu vaxtastigi. * Eiginfjárhlutfall (e. total capital ratio) í lok september nam 28,8% en það lágmark sem FME hefur sett bankanum er 16%. Eiginfjárhlutfall í árslok 2010 var 26,6%. · Lausafjárstaða bankans er sterk. Í lok þriðja ársfjórðungs voru lausafjárhlutföll bankans samkvæmt skilgreiningu FME 43% og 27% en FME gerir kröfu um að þessi hlutföll séu yfir 20% og 5%. * Heildarútlán til viðskiptavina og fjármálafyrirtækja námu um 526 ma. kr., en innlán námu um 428 ma. kr. Heildarútlán í lok árs 2010 námu 546 ma. kr. og innlán 423 ma. kr. * Hlutfall innlána af útlánum var 81,4% í lok tímabils samanborið við 77,5% í árslok 2010. * Eigið fé í lok september var 132 ma. kr. samanborið við 121 ma. kr. í árslok 2010. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: "Þetta uppgjör endurspeglar að grunnrekstur bankans er að styrkjast og jafnvægi hefur aukist í rekstri Íslandsbanka. Árið 2011 hefur verið helgað fjárhagslegri endurskipulagningu, bæði fyrirtækja og einstaklinga. Frá því að nýi bankinn var stofnaður hafa um 280 milljarðar króna verið afskrifaðir eða niðurfærðir til 2.700 fyrirtækja og 17.700 einstaklinga sem nú geta horft fram á veginn. Íslandsbanki hefur lagt sitt lóð á vogaskálarnar í enduruppbyggingu fjármálamarkaðarins hér á landi og hefur undanfarið unnið að útgáfu á sértryggðum skuldabréfum í kauphöll Íslands en bankinn er fyrsta fjármálafyrirtækið sem gefur út verðbréf eftir hrun. Að auki náðum við stórum áfanga þegar kaup Íslandsbanka á Byr voru samþykkt en sameiningin er einnig liður í mikilvægri hagræðingu á íslenskum fjármálamarkaði. Með sameiningunni varð til eitt öflugasta fjármálafyrirtæki á Íslandi." Frekar upplýsingar veita: Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi í síma 844 3678 Sigrún Hjartardóttir, fjárfestatengslum í síma 844 4748 Fulla og óstytta útgáfu þessara tilkynningar er að finna í viðhengi. Reikninga Íslandsbanka má finna á heimasíðu bankans www.islandsbanki.is |
|||
|