|
|||
![]() |
|||
2011-12-07 09:21:00 CET 2011-12-07 11:23:50 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf ÍslandsbankaÍslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist viðskiptavakt með útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20.000.000 króna að nafnverði. MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að því hefur verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 1%. Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60.000.000 kr. að nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta viðskiptadag. Viðskiptavaktin gildir frá og með miðvikudeginum 7. desember 2011. |
|||
|