|
|||
2015-02-25 16:35:51 CET 2015-02-25 16:36:52 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - ÁrsreikningurÁrsreikningur Landsvirkjunar 2014Hagnaður ársins er 78,4 milljónir USD - Nettó skuldir lækka um 238,7 milljónir USD frá fyrra ári Helstu atriði ársreiknings: -- Rekstrartekjur námu 438,3 milljónum USD (57,0 ma.kr.) sem er 3,6% hækkun frá árinu áður.1 -- EBITDA nam 332,2 milljónum USD (43,2 ma.kr.) sem er 0,9% hækkun frá árinu áður. EBITDA hlutfall er 75,8% af tekjum, en var 77,8% árið áður. -- Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 146,9 milljónum USD (19,1 ma.kr.), en var 121,8 milljónir USD (15,8 ma.kr.) árið áður og hækkar því um 20,5% milli ára. -- Hagnaður ársins var 78,4 milljónir USD (10,2 ma.kr.) en árið áður var tap 38,5 milljónir USD (5,0 ma.kr.). -- Nettó skuldir lækkuðu um 238,7 milljónir USD (31,0 ma.kr) á milli ára og voru í árslok 2.190,5 milljónir USD (284,8 ma.kr.). -- Handbært fé frá rekstri nam 233,8 milljónum USD (30,4 ma.kr.) sem er 9,5% lækkun frá árinu áður. -- Fjárfestingar námu 88,3 milljónum USD (11,5 ma.kr.). Handbært fé frá rekstri eftir fjárfestingar var því 145,5 milljónir USD (18,9 ma.kr.) sem nýtt er til lækkunar skulda og greiðslu arðs til eigenda. Hörður Arnarson, forstjóri: „Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2014 þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi, einkum vegna lágs álverðs og takmörkunar á afhendingu raforku vegna slakrar vatnsstöðu. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði var um 19 milljarðar króna, hækkaði um 20% frá fyrra ári og hefur ekki verið meiri áður. Fyrirtækið byggir á góðum grunni hjá starfsmönnum í orkuvinnslu um land allt á 50 ára afmælisári þess og árangur af öflugri fjármálastjórn ásamt auknu markaðsstarfi og rannsóknarstarfi er þegar farinn að skila sér. Nettó skuldir halda áfram að lækka og hafa nú lækkað um rúma 80 milljarða króna frá árslokum 2009. Með aukinni fjármunamyndun vegna aukinnar orkusölu, hærra raforkuverðs og lægri skuldsetningar munu tækifæri til arðgreiðslna aukast verulega á næstu árum.“ |
|||
|