|
|||
2010-08-25 14:10:47 CEST 2010-08-25 14:11:45 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - ÁrsreikningurHagnaður TM á fyrri helmingi ársins 2010 nam 319 m.krHelstu rekstrarniðurstöður Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) janúar til júní 2010: • Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á fyrri helmingi ársins 2010 var 319 m.kr. samanborið við 491 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. • Eigin iðgjöld jukust um 11% og voru 5.032 m.kr. samanborið við 4.524 m.kr. á sama tímabili 2009. • Fjárfestingatekjur félagsins voru jákvæðar sem nemur 1.057 m.kr. á fyrri helmingi ársins en voru 2.194 m.kr. á sama tímabili 2009. • Eigin tjónakostnaður lækkaði um 5% og var 3.996 m.kr. á fyrri helmingi ársins samanborið við 4.185 m.kr. á sama tímabili 2009. • Rekstrarkostnaður lækkaði um 5% og var 1.124 m.kr. samanborið við 1.178 m.kr. á sama tímabili 2009. • Eigið tjónshlutfall félagsins lækkaði úr 92% í 79% á milli ára. Kostnaðarhlutfall lækkaði sömuleiðis úr 23% í 19% Samsett hlutfall er nú 99% samanborið við 116% á sama tímabili 2009. • Heildareignir TM voru 31.613 m.kr. þann 30. júní 2010 en voru 30.699 m. kr. á sama tíma í fyrra. • Eigið fé nam 8.357 m.kr. og var eiginfjárhlutfall 26% þann 30. júní 2010. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM: „Hagnaður félagsins af reglulegri starfsemi á fyrstu 6 mánuðum ársins dregst saman um 35% milli ára og skýrist það fyrst og fremst af lækkun fjárfestingatekna. Mikilvægum áfanga var náð á fyrri hluta ársins í vátryggingarekstrinum þar sem samsett hlutfall fer nú í fyrsta skipti í langan tíma undir 100%. Bæði tjóns- og kostnaðarhlutfall lækka milli ára og rekstrarkostnaður félagsins lækkar nú í krónum talið, þriðja árið í röð. Ánægjulegt er að afkoma flestra vátryggingagreina er nú á áætlun. Endurskoðun verðlagningar og áhættumats í slysa- og ábyrgðartryggingum er þó ekki lokið. Draga má nokkurn lærdóm af mikilli fjölgun ábyrgðartjóna í kjölfar efnahagshrunsins. Styrkur TM kemur skýrt fram í efnahagsreikningi félagsins sem sýnir hátt hlutfall peningalegra eigna, ríkisskuldabréfa og annarra auðseljanlegra eigna. Félagið er því vel í stakk búið til þess að takast á við framtíðina.“ „Uppgjörið sýnir að starfsfólk TM hefur náð umtalsverðum árangri í rekstri félagsins og staðið sig einstaklega vel við sérstakar aðstæður á íslenskum tryggingamarkaði. Það er sérstakt fagnaðarefni að vátryggingareksturinn er nú loks að ná jafnvægi, enda grundvallaratriði að sú starfsemi beri sig.” Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2609 |
|||
|