|
|||
2014-09-08 10:23:58 CEST 2014-09-08 10:24:59 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur ágúst 2014Í ágúst flutti félagið um 354 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18% fleiri en í ágúst á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 19% og sætanýting var 86,2% samanborið við 85,5% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 23,4% og voru þeir 55% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í ágúst. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 32 þúsund í ágúst og fækkaði um 2% á milli ára. Framboð félagsins í ágúst var dregið saman um 3% samanborið við ágúst 2013. Sætanýting nam 74,1% og jókst um 0,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 22% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 1% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 3,9% milli ára. Herbergjanýting var 88,3% samanborið við 88,2% í ágúst í fyrra. MILLILANDAFLUG ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 353.826 300.164 18% 1.811.906 1.573.484 15% Sætanýting 86,2% 85,5% 0,7 %-stig 80,9% 80,5% 0,4 %-stig Framboðnir 1.223,3 1.031,3 19% 6.652,8 5.678,9 17% sætiskm. (ASK'000.000) INNANLANDSFLUG ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%) OG GRÆNLANDSFLUG -------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 32.338 32.928 -2% 203.373 214.652 -5% Sætanýting 74,1% 73,5% 0,6 %-stig 71,2% 71,6% -0,3 %-stig Framboðnir 20,0 20,7 -3% 106,5 110,8 -4% sætiskm. (ASK'000.000) LEIGUFLUG ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 87,5% 90,9% -3,4 %-stig 94,8% 90,5% 4,3 %-stig Seldir 1.958 2.512 -22% 14.419 19.102 -25% blokktímar FRAKTFLUTNINGA ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%) R -------------------------------------------------------------------------------- Framboðnir 23.477 21.560 9% 149.130 135.533 10% tonnkm. (ATK´000) Seldir tonnkm. 7.301 7.245 1% 64.405 61.598 5% (FTK´000) HÓTEL ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Framboðnar 35.850 34.535 4% 225.643 223.567 1% gistinætur Seldar 31.647 30.472 4% 175.670 167.059 5% gistinætur Herbergjanýtin 88,3% 88,2% 0,1 %-stig 77,9% 74,7% 3,1 %-stig g Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 8407010 |
|||
|