|
|||
![]() |
|||
2012-05-10 17:31:00 CEST 2012-05-10 17:31:03 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirKaup Lánamála ríkisins á ríkisskuldabréfum samhliða gjaldeyrisútboði Seðlabanka ÍslandsÍ tilkynningu Lánamála ríkisins þann 17. apríl 2012 kemur fram að kaupendur gjaldeyris í útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Þann 3. maí tilkynntu Lánamálin kjörin sem buðust kaupendum gjaldeyris í útboðinu sem var haldið í gær, 8. maí. Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs keyptu engin bréf. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|