|
|||
![]() |
|||
2024-04-23 21:00:00 CEST 2024-04-23 21:00:09 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Icelandair: Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2024
„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48% með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands dróst lítið eitt saman. Tekjumyndun var áfram góð og fjórðungurinn var tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu félagsins. Þrátt fyrir að framboðsaukning á ákveðnum mörkuðum hafi sett þrýsting á fargjöld og sætanýtingu, var áherslan í framboðsaukningu Icelandair hins vegar fyrst og fremst á markaði sem skila félaginu góðum tekjum og arðsemi. Við náðum árangri í lækkun einingakostnaðar, eða um 5%, en hærra hlutfall hagkvæmari flugvéla, stærðarhagkvæmni og meiri skilvirkni i rekstrinum hafði áhrif til lækkunar. Við náðum jafnframt framúrskarandi árangri í stundvísi sem er einnig lykilþáttur í að draga úr kostnaði sem og stuðla að ánægju farþega. Mikill viðsnúningur hefur orðið í fraktstarfsemi okkar sem skilaði rekstrarhagnaði í fjórðungnum og er útlitið gott fyrir árið í heild. Leiguflugið skilaði áfram góðri afkomu en sú starfsemi skilar mikilvægum tekjum og arðsemi inn í félagið og dregur úr áhrifum árstíðasveiflu með bættri nýtingu flota og áhafna allan ársins hring. Árið 2023 lauk endurreisn Icelandair eftir heimsfaraldurinn og reksturinn skilaði hagnaði á ný. Nú í ár er áhersla okkar fyrst og fremst á aðgerðir til að ná fram aukinni skilvirkni í rekstrinum, lækka kostnað og styrkja tekjumyndun enn frekar. Við höfum þegar gripið til fjölmargra aðgerða, til dæmis einfaldað skipulag félagsins og fækkað stjórnendum og útvistað starfsemi flugeldhússins í Keflavík sem er eitt stærsta framleiðslueldhúss landsins, með um 200 stöðugildi. Þá er vinna hafin að fjölmörgum öðrum verkefnum til að auka skilvirkni. Með þessar áherslur að leiðarljósi gerum við ráð fyrir auknum hagnaði eftir skatta fyrir árið í heild og erum á réttri leið til að ná langtímamarkmiðum okkar. Ég vil þakka starfsfólki okkar fyrir frábært starf í undirbúningi fyrir háönnina og viðskiptavinum okkar fyrir að velja Icelandair. Við hlökkum til ferðalagsins framundan.” Vefútsending 24. apríl 2024 Kynning á uppgjöri 1. ársfjórðungs ársins 2024 verður í beinu streymi á https://icelandairgroup.com. Streymið hefst kl. 8:30 miðvikudaginn 24. apríl 2024 þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn verður á ensku. Kynningin verður aðgengileg að fundi loknum á heimasíðu félagsins og undir fyrirtækjafréttum á heimasíðu Nasdaq Nordic: http://www.nasdaqomxnordic.com/news/companynews |
|||
|