|
|||
2015-07-20 18:49:44 CEST 2015-07-20 18:50:17 CEST SÄÄNNELTY TIETO Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki hf. gefur út skuldabréf í evrumÍslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 100 milljón evrur (14,7 milljarðar króna) til þriggja ára sem ber 2,875% fasta vexti. Skuldabréfin voru seld til fjárfesta í Skandinavíu og á meginlandi Evrópu og sá Deutsche Bank um sölu bréfanna. Samhliða skuldabréfaútgáfunni nú hefur Íslandsbanki keypt til baka EUR 47,7 milljónir af skuldabréfaútgáfu frá árinu 2014. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllinni á Írlandi þann 27. júlí 2015. Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/ Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3925. [HUG#1940031] |
|||
|