2007-12-12 17:25:09 CET

2007-12-12 17:25:09 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

- Útboð vegna sölu íbúðabréfa, 10. áfangi 2007


Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum
HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644.  Íbúðalánasjóður stefnir að því
að taka tilboðum allt að fjárhæð 5 milljarðar króna að nafnverði. 
Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka
hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi
Íbúðalánasjóðs við Kaupþing, Glitni, Landsbanka Íslands, Straum - Burðarás, MP
fjárfestingabanka og Saga Capital Fjárfestingarbanka hafa aðalmiðlarar einir
rétt á tilboðsgerð. 

Hér með er óskað eftir tilboði í frumsölu á íbúðabréfum gefnum út af
Íbúðalánasjóði í samræmi við eftirfarandi lýsingu. Sjá viðhengi. 

Tilboð skulu berast til Fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs, Höfðaborg, Borgartúni 21,
Reykjavík fyrir kl. 9:00, fimmtudaginn 13. desember 2007.  Öllum tilboðum
verður svarað fyrir kl. 09:45 sama dag. 

Tilboð skal senda Íbúðalánasjóði í lokuðum umslögum. Einnig má senda tilboð í
tölvupósti til fjarstyring@ils.is eða með myndsendi í númer 569-6890 á
tilboðsdegi ef það er staðfest fyrirfram með símtali við starfsmenn
fjámálasviðs Íbúðalánasjóðs í síma 569-6990.