|
|||
![]() |
|||
2016-06-28 17:32:35 CEST 2016-06-28 17:32:35 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: Kaup á ríkistryggðum verðbréfum í tengslum við tilboð Seðlabanka Íslands um kaup á aflandskrónueignum á útboðsgengi gjaldeyrisútboðs Seðlabanka Íslands þann 16. júní 2016 Frétt send út: 2016-06-27 18:02:46 CESTLeiðréttur flokkur í lista (RIKB 22 1026) Í tengslum við gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands hinn 16. júní sl., í samræmi við skilmála gjaldeyriskaupa á útboðsgengi sem birtir voru þann 22. júní sl. og auglýsingu um niðurstöður gjaldeyrisútboðs frá 21. júní sl. hefur Seðlabankinn ákveðið að kaupa eftirfarandi flokka ríkisvíxla, ríkisbréfa og útgáfur með ábyrgð ríkissjóðs til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum í útboðinu. Bréf Nafnverð Verð ------------------------------------- HFF150434 2.000.000 1,445123 HFF150644 9.261 1,713563 RIKB 16 1013 1.099.051.058 1,041573 RIKB 22 1026 40.395.000 1,095128 RIKB 31 0124 13.000.000 1,043413 RIKV 16 0815 1.700.000.000 0,997640 RIKV 16 0915 4.074.400.000 0,996090 RIKV 16 1115 1.155.000.000 0,993060 Í tengslum við uppgjör viðskiptanna þurfa ríkistryggðu skuldabréfin að berast Seðlabankanum fyrir kl. 10.00 hinn 29. júní 2016. Erlendi gjaldeyririnn verður afhentur á evrureikning milligönguaðila eftir afhendingu verðbréfanna og eigi síðar en kl. 16.00 sama dag. Fyrirspurnir er lúta að öllu framangreindu má senda á netfangið fxauction2016@cb.is |
|||
|