2009-04-16 13:07:39 CEST

2009-04-16 13:08:40 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

Landic Property hf. og nokkur dótturfélög í Danmörku sækja um greiðslustöðvun


Landic Property hf. og nokkur dótturfélög í Danmörku sækja um greiðslustöðvun 

-	Greiðslustöðvunin hefur engin áhrif á rekstur dótturfélaga sem eiga og reka
fasteignir félagsins á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi 

Stjórn Landic Property hf. hefur óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að
félaginu verði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Jafnframt sóttu í dag
nokkur dótturfélög Landic Property í Danmörku um greiðslustöðvun fyrir
dómstólum í Kaupmannahöfn. 

Starfsemi dótturfélaga Landic Property sem eiga og reka fasteignasöfn
samstæðunnar í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Finnlandi er óbreytt. Leigutakar
félagsins verða ekki fyrir áhrifum vegna greiðslustöðvanna. 

Með greiðslustöðvun umræddra félaga er gætt jafnræðis meðal kröfuhafa Landic
Property á meðan lokið er við endurskipulagningu félagsins og gengið frá
samningi um sölu á eignasöfnum Landic Property í Danmörku og Svíþjóð. 

Á Íslandi gildir greiðslustöðvunin einungis fyrir móðurfélagið, Landic Property
hf., en ekki íslensk dótturfélög. Í Danmörku hafa eftirtalin dótturfélög Landic
Property sótt um greiðslustöðvun: Landic Property A/S, Keops Development A/S,
Landic Investment A/S og Keops Bolig A/S auk nokkurra félaga sem stofnuð voru
um einstök þróunarverkefni félagsins. Lista yfir félög sem eru í
greiðslustöðvun í Danmörku má finna á heimasíðu félagsins. 

Dótturfélög Landic Property sem eiga og reka fasteignir félagsins í Danmörku,
Svíþjóð, Íslandi og Finnlandi eru ekki í greiðslustöðvun og gildir
greiðslustöðvunin m.a. ekki um eftirtalin dótturfélög: Landic Property Denmark
A/S (áður Atlas), Landic Property Denmark II A/S (Magasin/Illum fasteignirnar),
Landic Property Sverige AB, Landic Property Finland Oy, Landic Property Bonds I
A/S (SAS-fasteignasafnið), Landic Property Bonds VI (Svergie) A/S, Landic
Property Bonds VII (Stokkhólm) A/S, Landic Property Bonds VIII (Svergie II)A/S,
og Landic InvestorService A/S, Landic Ísland ehf., Langastétt ehf., Landsafl
ehf., Landic Property Ísland ehf., Austurstræti 14 ehf., FS6 ehf. og Líf
fasteignir ehf. 

Frekari upplýsingar veitir:
Viðar Þorkelsson
forstjóri Landic Property hf.
Sími 669 4444
E-mail: vth@landicproperty.com