2014-01-13 12:45:00 CET

2014-01-13 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0415 og RIKV 14 0715


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0415 og RIKV 14 0715 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0415:

Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.650 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.200 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,012 (flatir
vextir 3,99%). 

RIKV 14 0715:

Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.250 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 4.230 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,980 (flatir
vextir 4,10%).