|
|||
![]() |
|||
2017-10-10 18:12:17 CEST 2017-10-10 18:12:17 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 20 talsins og námu samtals 6.760 m. kr. að nafnverði. Engin tilboð bárust í flokkinn LBANK CB 21. Tíu tilboð að fjárhæð 1.080 m. kr. að nafnverði bárust í nýjan markflokk, LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,23%-5,45%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Þrjú tilboð að fjárhæð 2.220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,71%-2,73%. Tilboðum að fjárhæð 2.020 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,72%. Heildarstærð flokksins verður 8.620 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sjö tilboð að fjárhæð 3.460 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,62%-2,69%. Tilboðum að fjárhæð 1.180 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,67%. Heildarstærð flokksins verður 18.280 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 17. október 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|