|
|||
2009-03-20 14:31:36 CET 2009-03-20 14:32:44 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - Ársreikningur- Afkoma Landsvirkjunar árið 2008Ársreikningur Landsvirkjunar var í dag, 20. mars 2009, samþykktur á fundi stjórnar. Ársreikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og er hann í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar frá og með ársbyrjun 2008. Samanburðartölur fyrir árið 2007 hafa verið umreiknaðar á lokagengi Bandaríkjadals gagnvart íslenskri krónu í árslok 2007. Á árinu 2008 var tap af rekstri samstæðu Landsvirkjunar 344,5 milljónir Bandaríkjadala en rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) var 246 milljónir Bandaríkjadala. Handbært fé frá rekstri nam 184,4 milljónum Bandaríkjadala. Í árslok námu heildareignir samstæðunnar 4.619,2 milljónum Bandaríkjadala og eigið fé nam 1.376,8 milljónum Bandaríkjadala. Eiginfjárhlutfall er 29,8% í árslok 2008. Rekstrartekjur aukast um 83 milljónir Bandaríkjadala sem er að verulegu leyti vegna aukinnar orkusölu með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar. Rekstrarkostnaður án afskrifta nam 100,5 milljónum Bandaríkjadala á árinu en var 105,8 milljónir Bandaríkjadala árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 660,6 milljónum Bandaríkjadala sem skýrist aðallega af lækkun á gangvirði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði auk gengistaps. Gengistapið og gangvirðisbreytingar eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 4,51% á árinu 2008 en þeir voru um 4,69% árið áður. Gengisþróun og gangvirðisbreytingar á innbyggðum afleiðum munu sem áður ráða miklu um afkomu Landsvirkjunar í ár. Fyrirtækið hefur aðgang að lausafé og lánum sem ásamt fé frá rekstri mun tryggja að fyrirtækið getur mætt núverandi skuldbindingum sínum á þessu og næsta ári. Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar framkvæmdir nema að félaginu takist að afla nýrra langtímalána. Nánari upplýsingar veitir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000. Ársreikningur Landsvirkjunar verður lagður fyrir aðalfund fyrirtækisins 3. apríl nk. |
|||
|