|
|||
![]() |
|||
2012-04-26 16:50:48 CEST 2012-04-26 16:51:51 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - ÁrsreikningurLeiðrétting: Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2012 Birt: 2012-04-26 16:25:00Mikill tekjuvöxtur og góð arðsemi Leiðrétting: Hagnaður á hlut (EPS) er 1,80 evru sent í stað 1,80 evru. -- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2012 námu 184,9 milljónum evra, sem samsvarar 20,4% aukningu samanborið við sama tímabil árið 2011 [153,5 milljónir evra]. -- EBITDA var 27,4 milljónir evra, sem er 14,8% af tekjum [Q1 2011: 23,3 milljónir evra]. -- Rekstrarhagnaður (EBIT) var 21,1 milljón evra, sem er 11,4% af tekjum [Q1 2011: 17,1 milljón evra]. -- Hagnaður eftir skatta nam 13,1 milljón evra á fyrsta ársfjórðungi 2012 [Q1 2011: 8,8 milljónir evra]. Hagnaður á hlut (EPS) er 1,80 evru sent sem er 50% aukning frá fyrra ári. -- Sjóðstreymi er áfram traust og hreinar vaxtaberandi skuldir voru 254,2 milljónir evra í lok fjórðungsins samanborið við 250,5 milljónir evra í lok árs 2011. -- Pantanabók Marel er sterk í lok fjórðungsins og nemur 201 milljón evra sem er umtalsverð hækkun frá sama tíma árið 2011 [169 milljónir evra]. Marel byrjar árið 2012 vel og í samræmi við áætlanir félagsins um vöxt. Tekjur Marel á fyrsta ársfjórðungi námu 184,9 milljónum evra, sem er 20,4% aukning samanborið við sama tímabil árið 2011 og í takt við góðan árangur á síðasta ársfjórðungi 2011 [183,9 milljónir evra]. Rekstrarhagnaður (EBIT) er 11,4% sem er í samræmi við rekstrarmarkmið félagsins um 10-12%. Skipting tekna eftir landssvæðum er hagstæð. Á síðasta ársfjórðungi var góður vöxtur á mörkuðum í Asíu og Suður Ameríku sem vóg ríflega upp á móti hægari vexti í Bandaríkjunum. Horfur fyrir árið 2012 eru áfram jákvæðar að mati Marel ef litið er til pantanastöðu og markaðsþróunar. Theo Hoen, forstjóri: “Við erum ánægð með góðan tekjuvöxt og hagnaður félagsins er í takt við áætlanir. Það var mikil aukning í nýjum pöntunum á fyrsta ársfjórðungi, einkum í kjúklinga- og fiskiðnaði í Asíu og Suður Ameríku. Marel nýtur góðs af sterkri markaðsstöðu og útbreiðslu á heimsvísu. Ennfremur hefur sú stefna að fjárfesta vel í vöruþróun tryggt stöðugt framboð af nýjum vörum og lausnum sem stuðla að aukinni verðmætasköpun meðal viðskiptavina okkar. Við höfum hvergi gefið eftir þegar kemur að rekstrarhagræðingu með sífelldri endurskoðun vinnuferla og styrkingu sölu- og þjónustunets okkar. Í stuttu máli þá gengur vel við að koma stefnu félagsins í framkvæmd og starfsfólk Marel er einbeitt í að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem við höfum sett okkur.” Staða pantanabókar áfram sterk Töluverð aukning var á nýjum pöntunum á fyrsta ársfjórðungi, en virði þeirra nam 189 milljónum evra samanborið við 161 milljón evra á fyrsta ársfjórðungi 2011. Enn á ný var virði nýrra pantana hærra en afgreiddar pantanir og stóð pantanabókin í 201 milljón evra í lok fjórðungsins (Q1 2011: 169 milljónir). Vöxt í pöntunum má einna helst rekja til velgengni nýsköpunarvara á borð við RevoPortioner, Sensor X og heildstæðra framleiðslulína sem byggja á fjölda staðaleininga. Auk þess styður víðtækt sölu- og þjónustunet félagsins vöxt þess um allan heim. Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2012 Lykiltölur úr rekstri - helstu tölur í þúsundum evra Rekstrarreikningur 1. 1. Breyti ársfj. ársfj. ng Á samstæðugrunni 2012 2011 í % -------------------------------------------------------------------------------- Tekjur 184.864 153.537 20,4 Framlegð 67.992 58.918 15,4 Framlegð sem hlutfall af tekjum 36,8 38,4 Rekstrarhagnaður (EBIT) 21.119 17.121 23,4 EBIT sem hlutfall af tekjum 11,4 11,2 EBITDA 27.401 23.323 17,5 EBITDA sem hlutfall af tekjum 14,8 15,2 Hagnaður 13.068 8.776 48,9 Hagnaður sem hlutfall af tekjum 7,1 5,7 Mótteknar pantanir 1) 189.420 160.710 17,9 Pantanabók 200.773 169.328 18,6 -------------------------------------------------------------------------------- 1) Þjónustutekjur meðtaldar. Sjóðstreymi -------------------------------------------------------------------------------- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og 13.509 14.115 skatta Handbært fé frá rekstri 9.596 8.462 Fjárfestingar (7.184) (5.239) Fjármögnun (872) (22.863 ) ------------------ Nettó aukning (minnkun) á handbæru fé 1.540 (19.642 ) Efnahagur -------------------------------------------------------------------------------- Nettó vaxtaberandi skuldir 254.179 247.622 Veltufé 2) 112.952 60.316 2) Viðskiptakröfur, birgðir, verk í vinnslu og lánardrottnar. Kennitölur -------------------------------------------------------------------------------- Veltufjárhlutfall 1,3 1,3 Lausafjárhlutfall 0,9 0,9 Fjöldi útistandandi hluta í þúsundum 726.344 735.569 Markaðsvirði hlutafjár í milljónum evra miðað við 636,5 581,7 gengi í lok tímabils Arðsemi eiginfjár 13,9% 10,0% Hagnaður per hlut í evru sentum 1,80 1,2 Skuldsetningarhlutfall 3) 2,49 2,74 3) Nettó vaxtaberandi skuldir / leiðrétt EBITDA síðustu 12 mánaða. Markaðir Kjarnastarfsemi Marel beinist að fjórum greinum matvælaiðnaðarins: Vinnslu á kjúklingi, fiski, kjöti og frekari vinnslu. Kjúklingur: Fjöldi nýrra pantana á fyrsta ársfjórðungi var góður og bárust meðal annars stórar pantanir frá Norður- og Mið Ameríku, Rússlandi, Miðausturlöndum og Evrópu. Það var áfram mikið álag á framleiðslueiningar fyrirtækisins á tímabilinu og uppbygging á nýrri verksmiðju sem byggir á Aeroscalder tæknibúnaði hófst, en sú tækni minnkar vatns- og orkunotkun í frumvinnslu og dregur því verulega úr koltvísýringslosun (e. carbon footprint ) frá verksmiðjum kjúklingaframleiðenda. Marel vinnur einnig að því að taka upp nýtt skipulag á þjónustu sinni í þeirri viðleitni að bæta þjónustu við viðskiptavini. Nýtt skipulag mun gera fyrirtækinu kleift að veita viðskiptavinum víðtæka þjónustu óháð landfræðilegri staðsetningu. Fiskur: Fyrsti ársfjórðungur byrjaði vel í fiskiðnaði með glæsilegri Salmon Showhow sýningu, sem fór fram í starfsstöðvum Marel í Norresundby í Danmörku. Þessi árlegi viðburður var vel sóttur af um 200 viðskiptavinum úr hópi alþjóðlegra laxaframleiðenda sem fengu innsýn í nýjustu tækni og kerfi fyrir laxaframleiðslu. Marel gerði stærsta einstaka sölusamning sinn í fiskiðnaði á fjórðungnum um samþætt flæðilínukerfi fyrir stórframleiðanda í hvítfiski. Kerfið sem var kynnt til sögunnar í fyrra verður sérstaklega sniðið að þörfum kínverskra fiskframleiðenda og annarra framleiðenda á nýmörkuðum. Skortur á vinnuafli og hækkandi framleiðslukostnaður hefur skapað aukna þörf fyrir sjálfvirkni í fiskiðnaði en vöruframboð og lausnir Marel auka einmitt framleiðsluhraða, hráefnisnýtingu og -meðferð, auk þess sem Marel býður upp á hugbúnaðarlausnir til öflugri framleiðslustýringar. Kjöt: Verkefni tengd ýmsum kerfum voru í forgrunni í upphafi og voru allmörg tilboð gerð á fjórðungnum. Viðskiptavinir virðast sérstaklega áhugasamir um nýja skurðarvél sem kynnt var seint á árinu 2011, en nokkrar pantanir bárust í fjórðungnum og er fleiri að vænta á öðrum ársfjórðungi. Þótt hægur vöxtur sé nú á kjötmarkaði er gert ráð fyrir framtíðareftirspurn, þar sem ýmsir stórir framleiðendur hyggja á endurnýjun framleiðslutækja. Marel er í vænlegri stöðu til að mæta þörfum þessara framleiðenda og ríkir nokkur bjartsýni um framhaldið næstu misseri. Útlit er fyrir góða markaðsvirkni í Austur Evrópu og Eyjaálfu þar sem Marel mun halda áfram að byggja á góðum árangri. Frekari vinnsla: Fjöldi nýrra pantana var góður á ársfjórðungnum og í samræmi við væntingar Marel. Nokkrar QX pylsuframleiðslulínur voru seldar til viðskiptavina í Vestur Evrópu og í Bandaríkjunum. RevoPortioner 400 skurðarvélin reyndist vinsæl vara meðal smærri framleiðenda og hjá þeim sem bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval, en þessi markaður virðist vera að sækja í sig veðrið. Tvær stórar kynningar fóru fram á sýningarsvæði Marel í Boxmeer, sem hefur nú verið stækkað til að bjóða viðskiptavinum upp á enn betri upplifun í þægilegu umhverfi (Customer Experience Center). Sú fyrri var í samstarfi við kjötiðnaðarsetur Marel og þar var lögð áhersla á húðunartækni, en seinni kynningin snérist um lausnir fyrir pylsuiðnaðinn. Báðar kynningar voru vel sóttar af alþjóðlegum viðskiptavinum. Í lok fjórðungsins tóku iðnaðarsetur Marel í frekari vinnslu og kjötiðnaði þátt í Anuga FoodTec sýningunni þar sem nýjar útgáfur af RevoPortioner 500-600-700 skurðarvélum, ValueFryer steikingarvélinni og ModularOven eldunartækjum voru kynntar. Nýsköpun Fjárfesting í vöruþróun er lykilþáttur í árangri Marel og til að styrkja leiðandi stöðu sína í nýsköpun í fiskiðnaði hefur Marel nú sett á fót nýtt rannsóknateymi. Það er trú Marel að grunnur þess að skapa vöru sem byggist á hugviti sé að skilja „hvernig hlutir virka“ og „af hverju þeir virka ekki“. Það felur meðal annars í sér að skilja hvernig bein tengjast og eðli vöðvavirkni. Það krefst djúps skilnings á grundvallarþáttum hráefnisins að þróa og framleiða tímamóta hátæknibúnað eins og Marel gerir. Ofurkæling botnfiskstegunda og sjálfvirk beinahreinsivél eru til marks um nýjar aðferðir sem Marel hefur þróað og byggjast á rannsóknum og þekkingu fyrirtækisins. Rekstrarhagkvæmni Kostnaðaraðhald Marel leggur áfram ríka áherslu á kostnaðaraðhald og hagræðingu. Þrátt fyrir aukin umsvif er áfram unnið að frekari verðmætasköpun með því tryggja að sú lækkun á kostnaðargrunni félagsins sem náðst hefur á undanförnum ársfjórðungum verði varanleg. Sjóðstreymi Handbært fé, fyrir fjármagnsliði og skatta, er áfram gott og nemur 13,5 milljónum evra (Q1 2011: 14,1 milljón). Hækkun veltufjár stafar af auknum umsvifum í rekstri. Fjármögnun Efnahagsreikningurinn er sterkur og hreinar skuldir félagsins námu 254,2 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs samanborið við 250,5 milljónir í lok árs 2011. Rekstur félagsins er vel fjármagnaður þrátt fyrir fjárfestingu í framleiðsluhúsnæði og búnaði og á heildina litið er fyrirtækið vel í stakk búið til að takast á við frekari vöxt. Í febrúar voru eftirstöðvar á skuldabréfi félagsins í íslenskum krónum, sem samsvarar 7,6 milljónum evra, greiddar upp. Með þeirri uppgreiðslu hefur Marel greitt allar skuldbindingar sínar í íslenskum krónum og er nú eingöngu fjármagnað í evrum og dollurum (USD), þannig að skiptingin felur jafnframt í sér gjaldeyrisvarnir. Á fyrsta ársfjórðungi fengu hluthafar greiddan arð vegna reikningsársins 2011 í samræmi við samþykkt aðalfundar. Arðgreiðslan nam 0,95 evru senti á hlut, sem samsvarar um 20% af hagnaði ársins. Einnig keypti félagið eigin bréf til að mæta skuldbindingum samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsmenn. Kaup á eigin bréfum og arðgreiðslur til hluthafa námu 9,5 milljónum evra. Horfur Vel gengur að framfylgja stefnu Marel um framtíðarvöxt og félagið hefur trú á að áætlanir fyrir árið 2012 gangi eftir þar sem hagstæð skilyrði á nýmörkuðum munu vega upp á móti hægari vexti í þróaðri mörkuðum. Góð byrjun á fyrsta ársfjórðungi og sterk pantanabók gefa góð fyrirheit um framhaldið á árinu 2012. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri verkefna. Kynningarfundur 27. apríl 2012 Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins föstudaginn 27. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast. Birtingardagar fyrir reikningsárið 2012 -- 2. ársfjórðungur 2012 25. júlí 2012 -- 3. ársfjórðungur 2012 24. október 2012 -- 4. ársfjórðungur 2012 30. janúar 2013 Frekari upplýsingar veita: Helga Björk Eiríksdóttir, fjárfesta- og almannatengill. Símar: 563 8453 og 853 8453. Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563 8072 . Sigsteinn Grétarsson, aðstoðarforstjóri. Sími: 563 8072. Um Marel Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila. Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi: Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. |
|||
|