|
|||
2008-01-31 09:44:41 CET 2008-01-31 09:44:41 CET REGULATED INFORMATION Bakkavör Group hf. - Fyrirtækjafréttir- Bakkavör Group kaupir kínverskan grænmetisframleiðandaReykjavík, 31. janúar 2008. Bakkavör Group hefur keypt kínverska matvælafyrirtækið Yantai Longshun Foods, sem sérhæfir sig í framleiðslu á grænmeti og ávöxtum. Kaupverðið er trúnaðarmál en kaupin voru fjármögnuð með láni frá Mizuho Corporate Bank Limited. Með kaupunum á Longshun Foods gefst Bakkavör Group tækifæri til að styðja enn frekar við vöxt viðskiptavina félagsins í Kína, breikka vöruúrval sitt, auk þess sem félagið öðlast greiðari aðgang að fersku hágæðahráefni. Longshun Foods var stofnað árið 2001 og er staðsett í Lai Yang City, um 120 km frá Quingdao. Yfir 240 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu. Longshun Foods verður hluti af Bakkavör Group frá kaupdegi en kaupin munu hafa óveruleg áhrif á afkomu félagsins. Frekari upplýsingar veita: Ágúst Guðmundsson, forstjóri Sími: 550 9700 Hildur Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sími: 550 9706 Ásdís Ýr Pétursdóttir, fjárfestatengsl Sími: 858 9715 Netfang: investor.relations@bakkavor.com Um Bakkavör Group Bakkavör Group er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ferskra tilbúinna matvæla. Bakkavör Group rekur nú 57 verksmiðjur og er með um 20 þúsund starfsmenn í níu löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjavík og er félagið skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi. (www.icex.is - auðkenni BAKK). Bakkavör Group var stofnað árið 1986 og hefur starfsemi félagsins vaxið verulega á síðastliðnum 20 árum. Í dag er félagið leiðandi í framleiðslu á ferskum tilbúnum matvælum á alþjóðavísu. Félagið hefur leiðandi markaðstöðu í Bretlandi í lykilvöruflokkum sínum og framleiðir yfir 4.700 vörutegundir í 17 vöruflokkum. Vörur félagsins eru seldar undir vörumerkjum stórmarkaðanna. Meginhluti starfseminnar fer fram í Bretlandi en auk þess er félagið með starfsemi í Frakklandi, Belgíu, Spáni, Tékklandi, Suður-Afríku, Kína, Bandaríkjunum og á Íslandi. Skráning á póstlista Bakkavör Group: investor.relations@bakkavor.com |
|||
|