|
|||
2011-12-27 10:07:18 CET 2011-12-27 10:08:19 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun semur um alþjóðlegt sambankalánLandsvirkjun skrifaði undir sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði. Lánið er fjölmynta veltilán til þriggja ára að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala. Landsvirkjun getur dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum. Lánið er með framlengingarheimild um tvö ár og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár. Með lántökunni hefur Landsvirkjun lokið við endurfjármögnun samskonar láns sem er á gjalddaga í desember 2012. Um lántökuna sáu Barclays Capital, Citigroup og SEB. Aðrir bankar í láninu eru Arion Banki, JP Morgan, UBS, Landsbankinn og Íslandsbanki. Sambankalánið er fyrsti samningur af þessu tagi sem íslenskt opinbert fyrirtæki gerir síðan október 2008. Markmið lántökunnar er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan aðgang að fyrirvaralausri fjármögnun ef hefðbundnar fjármögnunarleiðir lokast tímabundið. Reykjavík, 23. desember 2011 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is |
|||
|