|
|||
2017-01-24 18:23:46 CET 2017-01-24 18:23:46 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarIslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.560 m.kr. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 580 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,56%. Heildartilboð voru 880 m.kr. á bilinu 5,51% - 5,58%. Heildarstærð flokksins verður 9.360 m.kr. eftir útgáfuna. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 540 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Heildartilboð voru 540 m.kr. á bilinu 3,21% - 3,25%. Heildarstærð flokksins verður 6.840 m.kr. eftir útgáfuna. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 140 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 140 m.kr. á 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 19.640 m.kr. eftir útgáfuna. Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 31. janúar næstkomandi. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 65.960 m.kr. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|