|
|||
2024-05-03 10:42:15 CEST 2024-05-03 10:42:24 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Landsbankinn hf.: Leiðrétting: Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 - Birt: 2024-05-02 14:25:23 CESTLeiðrétting: Upplýsingar um áhrif nýrra krafna Seðlabanka Íslands um bindiskyldu hafa verið leiðréttar í tilvitnun bankastjóra.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: „Það er merkur áfangi að efnahagsreikningur Landsbankans er nú orðinn yfir 2.000 milljarðar króna að stærð sem er tvöföldun frá stofnefnahagsreikningi bankans árið 2008. Efnahagsreikningurinn hefur stækkað jafnt og þétt og á fyrsta fjórðungi þessa árs nam aukningin tæplega 72 milljörðum króna. Stækkandi efnahagsreikningur gerir okkur kleift að styðja enn betur við atvinnulíf og íslenskt samfélag. Öflug útlánastarfsemi er grundvallarþáttur í rekstri bankans. Á þessu ári hefur verið lítil aukning í íbúðalánum en meira um endurfjármögnun. Fyrirtækjalán jukust jafnt og þétt og alls nam aukning þeirra á fjórðungnum um 30 milljörðum króna. Fjármögnun bankans gekk sérlega vel á fjórðungnum. Við gáfum bæði út víkjandi skuldabréf í íslenskum krónum að fjárhæð 15 milljarðar króna og 300 milljóna evru skuldabréf, í báðum tilfellum á góðum kjörum. Nú í apríl fengum við þau ánægjulegu tíðindi að alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings hefði hækkað lánshæfismat bankans. Arðsemi bankans gefur eilítið eftir en er nálægt langtímamarkmiði. Helsta ástæðan fyrir lægri arðsemi er sú að bankinn eykur varúðarframlag á fjórðungnum vegna náttúruvárinnar í Grindavík. Það er mikilvægt að bankinn hafi efnahagslegan styrk til að takast á við afleiðingar náttúruhamfaranna og geti áfram stutt við viðskiptavini sína í Grindavík, líkt og hingað til. Við búumst við að heildararðsemin á þessu ári rétti sig af og verði yfir markmiði bankans. Þá er rétt að benda á að nýjar kröfur Seðlabanka Íslands um bindiskyldu verða til þess að Landsbankinn mun eiga um 35 milljarða króna á vaxtalausum reikningi hjá Seðlabankanum, sem er aukning um 50% frá fyrri kröfu. Kostnaðaraukinn er einn milljarður á ári fyrir bankann. Uppgjör bankans er gott og til marks um öflugan og góðan rekstur. Áfram er mikill kraftur í þróun nýrra lausna fyrir viðskiptavini. Meðal nýjunga sem við kynntum á fyrsta fjórðungi er að nú geta viðskiptavinir sjálfir endurfjármagnað íbúðalánin sín í Landsbankaappinu. Þessi möguleiki hefur aldrei áður verið í boði á Íslandi og lausnin stendur mjög framarlega á heimsvísu. Þessi lausn mun sannarlega einfalda líf viðskiptavina. Við tókum líka spjallmennið Ellí í notkun og það tók strax á sprett og afgreiðir nú um helming allra erinda í netspjallinu á landsbankinn.is við góðan orðstír. Það er sömuleiðis ánægjulegt að viðskiptavinir nýta spjallið reglulega til að láta í ljós álit sitt á þjónustu bankans og samskiptum við starfsfólk. Með því að þróa sífellt nýjar lausnir bætum við enn frekar þjónustu við viðskiptavini Landsbankans, sem eru einmitt þeir ánægðustu á bankamarkaði.“
Fjárhagsdagatal Landsbankans
Nánari upplýsingar veita: Samskipti, samskipti@landsbankinn.is Fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.is
Viðhengi
|
|||
|