2016-08-25 17:56:01 CEST

2016-08-25 17:56:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs júlí 2016


Minni vanskil

Frá lok júlí 2015 hefur hlutfall vanskila einstaklinga dregist saman um tæp
40%, úr 6,7% í 4,1%. Hlutfall lögaðila lána í vanskilum hefur á sama tíma
dregist saman um 75% eða úr 16,3% í 4,1%. Heildarkröfuvirði einstaklinga og
lögaðila í vanskilum hefur lækkað um 37 milljarða króna á þessum tólf mánuðum
og stendur nú í 25,1 milljarði króna. Vanskil tengjast 4,1% af heildarlánasafni
ÍLS en hlutfallið var 8,7% í lok júlí 2015. 

Sala íbúða í eigu sjóðsins gengur vel

Sala íbúða hefur gengið vel það sem af er ári. Alls hafa 698 eignir verið
seldar og kauptilboð samþykkt í 98 eignir til viðbótar. Sjóðurinn átti 809
eignir í lok júlí og hefur 93% þeirra verið ráðstafað í leigu, sölumeðferð eða
vinnslu. Til samanburðar voru eignir í eigu sjóðsins 1.522 í lok júlí árið
2015. 

Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu

manaarskyrsla juli.pdf