2017-03-23 19:13:48 CET

2017-03-23 19:13:48 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Islandsbanki hf. : Niðurstöður aðalfundar Íslandsbanka 23. mars 2017


Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag, fimmtudaginn 23. mars. Friðrik
Sophusson, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir,
bankastjóri, fór yfir uppgjör bankans og helstu þætti í starfsemi hans á árinu
2016.

Íslandsbanki greiddi 10,2 milljarða í skatta árið 2016 og nam sérstakur
bankaskattur 2,8 milljörðum króna. Friðrik lagði í máli sínu áherslu á að að
lækka þyrfti bankaskattinn verulega sem átti að vera tímabundin aðgerð til að
fjármagna leiðréttingu íslenska ríkisins á húsnæðislánum. Í samanburði við
nágrannalönd væri skattbyrði hér fjórföld. Því væri nauðsynlegt að gefa
fjárfestum vissu um þróunina, annars myndi skatturinn hafa áhrif á möguleika á
skráningu bankans á skipulegan verðbréfamarkað og það verð sem ríkið gæti fengið
fyrir hann við sölu. Þar að auki rýri skatturinn verulega samkeppnismöguleika
íslensku bankanna.

Í máli Friðriks kom jafnframt fram að íslenska bankakerfið hafi minnkað úr
rúmlega áttfaldri landsframleiðslu árið 2008 niður undir tvöfalda
landsframleiðslu í lok 2015. Kerfið hafi því minnkað um 80% samkvæmt þeim
mælikvarða og væri nú hóflegt að stærð í samanburði við bankakerfin annars
staðar á Norðurlöndunum.

Gott og viðburðaríkt ár

Á fundinum fjallaði Birna um rekstur bankans og viðburðaríkt ár. Bankinn flutti
í nýjar höfuðstöðvar í lok ársins þar sem starfsmenn sameinast af fjórum
starfsstöðvum. Birna fór yfir stöðu lánasafns bankans en í lok árs var hlutfall
ferðaþjónustu 13% af lánasafni bankans en útlán jukust hóflega á árinu.

Birna fjallaði einnig um 500 milljón evra skuldabréfaútgáfu bankans í september
en þá fengust bestu kjör sem sést hafa í sambærilegum viðskiptum frá 2008. Hún
fagnaði mikilli eftirspurn en fjöldi erlendra skuldabréfafjárfesta hefur nærri
tvöfaldast. Lánshæfismat bankans hækkaði einnig  á árinu í BBB frá bæði Standard
& Poor's og Fitch Ratings, en Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með tvö
alþjóðleg lánshæfismöt.

Bankinn mældist hæstur á íslenskum bankamarkaði nýlega samkvæmt Íslensku
ánægjuvoginni fjórða árið í röð. Birna sagði þetta styðja við framtíðarsýn
bankans að veita bestu bankaþjónustu á Íslandi og þakkaði starfsfólki fyrir vel
unnin störf á árinu.

Niðurstaða aðalfundar

Í stjórn bankans voru kjörin: Anna Þórðardóttir, Auður Finnbogadóttir, Árni
Stefánsson, Hallgrímur Snorrason, Heiðrún Jónsdóttir, Helga Valfells og Friðrik
Sophusson, sem einnig var kjörinn formaður stjórnar. Herdís Gunnarsdóttir og
Pálmi Kristinsson voru kjörin í varastjórn bankans. Samþykkt var á fundinum að
10 milljarðar króna af hagnaði ársins 2016 verði greiddar í arð til hluthafa.
Stjórn bankans var einnig fengin heimild til að kalla til sérstaks
hluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga um greiðslu arðs af hagnaði fyrri
rekstrarára kann að vera lögð fram. Starfskjarastefna fyrir bankann var samþykkt
á fundinum og ákveðin þóknun til stjórnar- og varamanna. Ernst & Young verður
áfram endurskoðunarfélag bankans til næsta aðalfundar.

Hægt er að nálgast Ársskýrslu Íslandsbanka 2016 á
www.islandsbanki.is/arsskyrsla.

Önnur gögn frá aðalfundi má finna á www.islandsbanki.is/adalfundur og á vef
fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  tinna.molphy@islandsbanki.isog í síma
    440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda
    Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
  *








[]