2016-07-11 17:31:01 CEST

2016-07-11 17:31:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 17 0116


Miðvikudaginn 13. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokknum RIKV 17 0116 sem er með gjalddaga 16. janúar 2017. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 15. júlí 2016.

Sótt verður um að RIKV 17 0116 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi
föstudaginn 15. júlí 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.