2015-10-20 10:25:45 CEST

2015-10-20 10:26:27 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Kröfuhafar Glitnis leggja til breytt eignarhald á Íslandsbanka


Fjármálaráðuneytið hefur tilkynnt um breytingar á tillögu hóps kröfuhafa Glitnis
vegna stöðugleikaframlags Glitnis til ríkisins í tengslum við áætlun ríkisins um
losun fjármagnshafta.



Helstu breytingar frá áður tilkynntum tillögum kröfuhafa Glitnis til ríkisins
eru að Glitnir mun afsala öllu hlutafé ISB holding ehf., sem er eigandi 95%
hlutafjár Íslandsbanka hf., til stjórnvalda. Eigið fé Íslandsbanka nam um 185
ma. kr. í lok júní 2015.



Þann 16. júlí var tilkynnt um rammasamkomulag Glitnis og Íslandsbanka. Helsta
breytingin frá því samkomulagi er að eiginfjárhlutfall  Íslandsbanka mun ekki
lækka eins og áður var gert ráð fyrir þar sem ekki er gert ráð fyrir sérstökum
arðgreiðslum frá bankanum. Aðrir þættir í tillögum kröfuhafa er að Glitnir kaupi
af íslenska ríkinu víkjandi (T2) skuldabréf útgefið af Íslandsbanka og
langtímafjármögnun mun koma í stað innlána Glitnis í erlendri mynt en
endurgreiðsla innlána Glitnis í íslenskum krónum er háð samkomulagi við
Seðlabanka Íslands.



Ofangreindar breytingarnar eru háðar því að nauðasamningar náist og byggja á
sömu forsendum og komu fram í tillögum aðila 8. júní 2015. Gert er ráð fyrir að
samningurinn taki ekki ekki gildi fyrr en um áramót.



Breyting á tillögum kröfuhafa Glitnis mun ekki hafa áhrif á daglega starfsemi
Íslandsbanka og munu viðskiptavinir og starfsmenn bankans ekki finna fyrir
breytingum vegna þessa.



Tilkynningu Fjármálaráðuneytisins má finna hér:
http://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/20163

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
844 4752.
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 4005.



[HUG#1960031]