|
|||
2012-08-30 17:31:00 CEST 2012-08-30 17:31:03 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirKaup Lánamála ríkisins á ríkisskuldabréfum samhliða gjaldeyrisútboði Seðlabanka ÍslandsÍ tilkynningu Lánamála ríkisins þann 26. júlí 2012 kemur fram að kaupendur gjaldeyris í útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Þann 23. ágúst tilkynntu Lánamálin kjörin sem buðust kaupendum gjaldeyris í útboðinu sem var haldið í gær, 29. ágúst. Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs keyptu engin bréf. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|