|
|||
![]() |
|||
2024-07-05 08:00:00 CEST 2024-07-05 08:00:00 CEST REGULATED INFORMATION Amaroq Minerals Ltd. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumNýr fjármálastjóriToronto, Ontario, July 05, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- Nýr fjármálastjóri TORONTO, ONTARIO – 05. júlí 2024 – Amaroq Minerals Ltd. hefur ráðið Ellert Arnarson sem fjármálastjóra félagsins og hefur hann störf í ágúst. Ellert kemur til Amaroq frá Landsbankanum þar sem hann hefur gengt stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Þar áður starfaði Ellert í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og sem sjóðsstjóri hjá GAMMA Capital Management. Ellert er með M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í stærðfræði frá sama skóla. Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq: „Fyrir hönd stjórnar félagsins er það mér sönn ánægja að bjóða Ellert velkominn til starfa hjá Amaroq á þessum tímamótum í rekstri félagsins, nú þegar við vinnum að því að koma Nalunaq vinnslusvæðinu á Suður Grænlandi í rekstur. Við höfum unnið náið með Ellerti sem ráðgjafa undanfarin tvö ár og viðamikil reynsla hans á íslenskum fjármálamarkaði gerir hann að frábærri viðbót við sérhæft fjármálateymi okkar á sviði námurekstrar.“ Nánari upplýsingar: Amaroq Minerals Ltd. Eddie Wyvill, Corporate Development ![]() |
|||
|