|
|||
![]() |
|||
2017-06-15 18:16:20 CEST 2017-06-15 18:16:20 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 13 talsins og námu samtals 1.580 m. kr. að nafnverði. Tilboð að fjárhæð 40 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 19 á ávöxtunarkröfu 5,05% og var því tilboði ekki tekið. Tilboð að fjárhæð 60 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu 5,05% og var því tilboði ekki tekið. Fimm tilboð að fjárhæð 940 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,92%-3,08%. Tilboðum að fjárhæð 840 m. kr. tekið á ávöxtunarkröfunni 2,96%. Heildarstærð flokksins verður 2.340 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sex tilboð að fjárhæð 540 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,69%-2,72%. Öllum tilboð var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,72%. Heildarstærð flokksins verður 7.460 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. júní 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|